Sveitastelpan!

Salbjörg Matthíasdóttir ;*

23.01.2008 19:13:42 / sabba

Árið 2oo8... byrjar vel!;)

Já Gleðilegt nýtt ár
og takk fyrir það gamla;*

Við hjúin erum nú flutt á Akureyrina enn og aftur!
Og það er búið að vera yndisleegt.. við búum núna bara 2 í geggjað
kósý íbúð í Skarðshlíðinni, við fengum allt sem hægt er að fá með íbúð
með þannig... maður hvartar sko ekki;)

Ég er nú samt held ég ánægðust með eitt á þessu nýja ári
og það er að það er byrjað að sýna nýja seríu af One Tree hill
ÓJÁ GOTT FÓLK;)
þið sáuð hvað ég skrifaði 5. sería er að koma út:P
það er reyndar bara byrjað að sýna hana í USA en ég er svo
gríðarlega tæknivædd og sniðug, að ég downloada þeim um leið og ég get:p
Þessi sería gerist sko 4árum seinna þegar þau eru öll komin úr háskóla
og eru að koma sér fyrir!!:D

Svo er það nú skólinn!
ég er nú komin á næst síðustu önnina! í 22 einingar, þar af 6 í fjarnám:$
Og er farin að hlakka svo til og sé svo vel glitta í stúdentinn
að ég er bara nánast búin að plana algjörlega hvað skal gera eftir útskrift!
ég er allavega búin að ákveða að fara til USA og vera hjá Guðnýju
í góðum fílíng í svona 1-2 mánuði:D og bara flippa feitt!
djamma, tannast og hitta 50 cent8)
Svo langar mig líka geggjað að fara í Interrail um sumarið 2009
með Jónasi mínum:p kannski fleirum... er svona
að reyna að æsa hann uppí þetta... en hann er náttúrulega alltof
jarðbundinn til að láta sér dreyma með mér um hvað við ætlum að gera
eftir 1 og hálft ár... piff.. pælið í því!!:)

En aftur á jörðina...
um helgina fór Jónas suður með Björgvini Óla að hitta Arnþór..:D
og skemmti hann sér konunglega þar og lærði
ýmsa spilagaldra sem ég var ekki lengi að leysa:klikk:
En á meðan hann lá í borg óttans þá var ég að vinna hér í Bónus
nema hvað ég brunaði strax eftir vinnu á laugardagskveldið
inná Húsavík og fór með familíunni og ættlingjum á þorrablót þar!
Oooog það var geeeggjað gaman:D Svala og Jónas voru þar líka
og ég, Svala og Guðný sys vorum glæsilegar!!;)
syngjandi hástöfum með bjór og sviðakjamma;)
En svo lenti ég nú í því að vera veðurteft á sunnudeginum...
þannig ég komst ekki til vinnu... lá í þynnkunni í staðinn8|

en já ég held þetta sé orðinn alveg ágætis pistill hjá mér í bili!
best að fara að koma sér í stellingar fyrir leikinn
Áfram Ísland!!!

kv.Salbjörg Matt!


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.12.2007 17:01:26 / sabba

Jólin eru komiiiin;)

Já þau eru svo sannarlega komin.. og mér finnst þau vera búin að vera alltof fljót að líða.  ég fór í jólafrí á föstudeginum... þá var brunað inná Akureyri til að versla jólagjafirnar:)
En þrátt fyrir að mér hafi fundist þau alltof stutt þá voru þau alveg yndisleg!
Guðný systir kom og það var farið í jólabruns, graut í skúló í hádeginu á aðfangadag:) svo var Rjúpan elduð og ég kemst bara ekki yfir það hvað hún var aaalltof góð og lyktin.... mmmmm....:P

Ég fékk alveg rosa margar gjafir og ég var geðveikt ánægð með þær allar:D
 
Eins og þarna var ég að opna gjöfina frá Bjögga bróðir og fékk 50cent:D
Svo fékk ég líka Harry Potter, Anorakk, Trivial miniútgáfu, Diesel ylmvatn, 7000kr. úttekt í Sportver, boli, peysu, samlokugrill, brúnkukrem, eyrnalokka og svo maaargt fleira:)
Svo varaðeins gantast í Krossdal eftir pakkana....
Svo á jóladag var skrópað í kirkju og farið í surprise heimsókn í Mývatnssveit til Sveins og co. ;)
Svo var ég barað vinna 27. og 28. og farið í afmælispartý til Rúnars á Hóli og svoleiðis;)
svo er planið í kvöld að taka á því með Svölu og Jónasi og fagna nýju ári og kveðja þetta frábæra ár sem er að líða;)

en held að þetta sé komið nóg núna en Gleðilegt nýtt ár allir saman!!:D

Jóla- og nýárskveðja
Salbjörg Matt !

p.s. tékkiði á því nýjasta í internetheiminum... bloggsíðu Jónasar Þórs Viðarssonar sem er að finna hér til vinstri undir nafninu Elskurnar, Jónas minn!;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 16:35:53 / sabba

Aaaah, sveitin, sælan, og jólin eru að komaaaa!!:D

Úje trallala æm só happý æ kan siiing!!:D
jæja loooksins eru prófin búin og mér gekk ógeðslega vel:

STÆ 503 = 7
ÍSL 403 = 6
SAG 103 = 8
LAN 103 = 8
JAR 103 = 8
NÆR 113 = 8
SPÆ 303 = 9


SÁTT! Ég reyndar gat ekki verið lengur í prófum var fram á seinasta prófdag klukkan 2 :)
En annars er bara lífið gott og blessað, er byrjuð að vinna í Rifós í jólafríinu sem er bara ógeðslega fínt.
á reyndar eftir að gera aaaallt fyrir jólin.. við Jónas ætlum nú að fara í kortin í kvöld og svo förum við að kaupa jólagjafirnar á laugardaginn .... getur ekki verið seinna:) en það er svosem í góðu lagi.  Bjöggi bróðir er svo að leika í leikriti og er forsýning í kvöld en ég kemst ekki á hana, því ég var komin yfirum af söknuði til Jónasar, þannig ég fer á morgun:) hann fyrirgefur mér það hlýtur að vera;)

en ég hef nú voða fátt fleira að segja elska ykkur bara öll og gleðilega jóóól!!!;*


kv. Salbjörg Matthíasdóttir 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.11.2007 18:05:27 / sabba

Braces are a fact of life!

úffh! já það er mjög margt búið að vera í gangi þessa dagana!
mig allavega alveg verkjar við það að lesa seinasta blogg.. því að ég er svo hryllileeega svöng og langar í eitthvað roooosalega gott og heitt í matinn.
En það má ég víst ekki því ég var í aðgerð í gær, það var verið að festa keðjurnar í augntennurnar, og það þurft að taka af beininu hægra megin því kvikindið var svoleiðis einhversstaðar lengst uppi.:frown:
En jájá ég er því á fljótandi fæði og sýklalyfjum, sem leiðir það af sér að helgin ef komin í rúúúst:frown:
Það mun ekkert ganga upp hjá mér um helgina eins og ég var búin að plana!!

1. Ég er víst að vinna um helgina! jámm þau ákváðu að breyta helgunum mínum AKKÚRAT núna!

2. Ég má ekki drekka útaf aðgerðinni og sýklalyfjunum

3. útaf 1 og 2 kemst ég þar af leiðandi ekki til Mæsunnar í partýið stóra, og eina leiðin fyrir mig til að fara á Palla er að fara edrú... og koma heim klukkan 2.

4. Jónas er að fara að spila með Knúti á Ýdölum, þannig hann verður ekki með mér um helgina!:(

Svona á ég nú bágt þessa stundina!
En nóg af væli núna!

Jákvætt:

1.Skólinn fer að verða búinn, það eru tæplega 4vikur í próf.

2. ég er komin með frí í vinnuni í Desember, þannig ég kemst heim strax eftir prófin

3. við Jónas erum búin að finna okkur nýja íbúð eftir áramót í Skarðshlíðinni;) (eigum reyndar eftir að fara að skoða)

4. Og það eru að koma Jól ! haha (neeei alltaf langt:D)

En ég ætla núna að fara að reynað finna mér einhverja ómerkilega fljótandi fæðu.
Þetta er alveg hræðilegt!... mig langar baaaara í það sem ég má alls ekki éta oooh!:$

kveðja Sabba svanga!:)


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 21:17:13 / sabba

09.10.05.- 09.10.07. ástfangin í 2 ár;*

 
 
Jább það er ekkert minna!
við Jónas minn erum búin að vera saman í 2 ár og einn dag í dag!
áttum afmæli í gær, og fórum út að borða á Greifanum;)
og það voru skoo pantaðar kræsingar :o
 
 
 
Forréttur: mini tortillas með ostafyllingu:P
Aðalréttur: Lambalundir með rauðvínssósu,
bakaðri kartöflu og geggjað góðu steiktu grænmeti
Eftirréttur: vooooolg súkkulaði kaka
með ís & rjóma og mokka kaffi ;P
 
mmmmm.... =)
Við vorum reeeyndar aaalveg búin á því svo eftir matinn,
seinasti bitinn átti í miiklum erfiðleikum niður
en þetta var meira en þess virði !!
svo lágum við bara einsog okkur er lagið uppí
rúmi í tjillinu og meltunni:)
 
frábært kvöld hjá fræbæru pari hehe8)
 
ástarkveðja!
Salbjörg;*
 
  
The image “http://farm1.static.flickr.com/144/390077323_1414487193.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.

» 9 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 22:56:15 / sabba

Sátt með helgina !;)

jahá... held það sé málið að blogga um þessa helgi...8)
Föstudagurinn var helvíti góð byrjun. ég byrjaði á því að sækja hana Svölu mína og bjóða henni í steik og bjór!:D mætti svo Jónas eftir máltíðina og við byrjuðum almennilega í bjórnum. Þar sem við vorum nú bara þrjú ákvað Jónas að krydda aðeins uppá og búa til mjöööög sérstakann drykkjuleik sem innihélt: glas & bjór & myndavél. Hann gekk nú þannig fyrir sig að það var gerð hálfgerð "myndasaga af því hvernig fólk verður við að drekka úr glasi sínu frá fullu glasi niður í botn:D Og var því drukkið frekar hratt úr glasinu til að sjá myndasöguna hahaha! Svo mættu Mæsa skyldmenni, kallinn hennar og anton. Og svo var bara farið að sofa nokkuð snemma;)

Laugardagurinn fór svo í nammiát og rólegheit, þangað til að fór að líða að kveldi þá mættu Jónas, Svala og Gunni Siggi og tókum við þar heljar drykkjuleik með spilastokk… sá sem fór verst útúr því var hann Jenni greyið sem byrjaði um sápuvatn í fyrstu pissupásunni sinni hehehee :lol:

helgardjaamm029.jpg picture by boggan

Eftir það var svo rölt niður í sjallann… JÁ RÖLT! :S þar t.d. ætlaði Svala að vera voooooða sniðug og stinga uppá styyyttri leið?!! Urr! Sem endaði náttúrulega með því ég rann beeeint í drulluna…. Pff! Var sko ekki sátt það skuluð þið vita:D
En þegar í sjallann kom forum við beint inná bað (ég til að þrífa drulluna) til að þurrka á okkur hárið því að dúið var allt farið mess eftir rigninguna:D haah!
Svo var bara dansað og tjúttað með vinum fram á rauða nótt ;**

Svo vakti pabbi mig nú á sunnudagsmorgunn og við skelltum okkur í Skagafjörðinn að sækja eitt stykki meri og eitt stykki folald sem við áttum þar hjá Þór frænda, og vorum hjá þeim mestallann daginn að stússast í hrossum, sem ég fílaði auðvitað í botn;) fékk smá keim að hrossaréttarfíling, þar sem við vorum að flokka graddanna úr og e-ð:P

hobbaaa.jpg picture by boggan

En þetta var algjör snilldar helgi… þótt ég geti nú alls ekki sagt það sama um mánudaginn … en það er nú önnur saga:D
en takk fyrir helgina elskurnar þetta var sniiiilld;*

loooov Salbjörg !8)

P.S. það má nú líka bæta því við að við forum fjögur ég & svala & gunni siggi & jenni á bocciamót VMA sem baugur group….. og urðum úr í fyrsta leik…. En erum nokkuð stolt samt;
)

f.jpg picture by boggan


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 18:45:26 / sabba

Strengir! Stirðleiki ! komst ekki á Palla! Stolt! ;D

Ójá! Fyrstu fótgangandi göngurnar og fyrsta "fjallgangan"

Í ár gekk ég í framfjöllum fyrir hann Óla! og það var mjöög erfitt... en samt gaman!:D ég bjóst samt við því að það myndi verða erfiðara en það var... en ég var heldur ekki látin ganga alveg í fjöllunum heldur var mér nú aðeins hlýft hehe.... !
en mínir fyrstu 2 tímar held ég að það hafi verið var baaaara snjór og fjöll og svoleiðis erfiðleikar... þurfti að byrja á því að elta einhverjar rollur strax í snjónum og frostinu brrr....


The image “http://www.rb-29.net/HTML/04.PAAvtnArt/PAShowScans/S03Land/SnowMtns3A.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.The image “http://home.online.no/~ptrptr/highlands/Image_2/Colors.jpg” cannot be displayed, because it contains errors.
þetta er svona svipað útlit :S

en það var nú samt e-ð sport við þetta;)

Jónas minn lenti líka í sínum fyrstu göngum um helgina... en hann þurfti að hlaupa aðeins meira en ég ásamt pabba & Bjögga bróðir og þar eru ýmsar ástæður fyrir erfiðum þeirra sem er betur látið óskrifað á veraldarvefnum ! :)

Svo stóðu réttirnar að sjálfsögðu fyirir sínu, alltaf pínu gaman að þeim;)

En ég samt sem áður fékk nú aldeilis að svekkja mig á því í dag að hafa misst af Palla!!:(
ÞAÐ FÓRU AAAALLIR! nema auðvitað ég!::cry:

En göngurnar & réttirnar standa nú samt alltaf fyrir sínu og alltaf eitthvað við þetta aksjón;)
Palli kemur líka aftur í sjallann:D hehe

En Íris Björk mín fer ábyggilega að fara að koma núna á hverri stundu... erum að farað elda okkur þessa eðal steik 8)

 

adíós;*

-Salbjöööörg

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2007 12:28:20 / sabba

Skólinn genginn í garð....

Jæja... skólinn?
Byrjar með ágætum.. fór í fyrstu tímana í dag, og það var bara nokkuð ágætt

ég var reyndar að skoða tímana, og ég er nánast aldrei með fólki sem ég þekki:/ bara í Sögu & Jarðfræði þá er ég líka með Sólu minni
;*

The image “http://i6.photobucket.com/albums/y226/boggan/DSC00120.jpg?t=1188233472” cannot be displayed, because it contains errors.

Gaman að segja líka frá því að hún Íris mín er buuusi og hún verður sko busuð illa... þar sem Svala er böðull og Anton skipuleggur þetta alltsaman ásamt Svölu:lol:... og það er verið að skipuleggja níðingshátt á henni greyinu bak og fyrir múahahah:D
og ég ætla sko ekki að spara hugmyndirnar;)

En við frænkurnar fluttum inní Drekagilið á fimmtudag og áttum svaka kósý helgi með köllunum:*... sem var nauðsiðnlegt því við verðum kallalausar alla vikuna:(
En þetta er orðið kaappnóg í bili vildi bara updata eitthvað hér inná þessari síðu Hoooolaaa...;)

 

- Salbjörg Matt 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 08:37:14 / sabba

' Ég hef klifið Drangey og snert rætur Íslands! '

Og það er sko ekkert smá verk!!8|
Skúlagarðsstarfsfólkið sem sagt ég & Íris, mamma, Gústa, pabbi og Björgvin ...Nonni fékk reyndar að fylgja;) fórum í staffa ferð í Skagafjörðinn og skelltum okkur útí Drangey með Drangeyjarjarlinum og hans syni!  í batnum sáum við hvali, seli ooog fullt af marglittum... sem drógu úr okkur Írisi kjarkinn við að hoppa útí sjó og fara í fótabað:D

en er í Drangeyna kom var aaagalega fallegt klettarnir voru svo þvílíkir!
þegar komið var í land sáust þessir fínu stigar og göngustígar upp eina og lögðum við stöllur galvaskar af stað upp, fór þá að síga að okkur hræðslan! en pabbi og Kolli (sonurinn) höfðu mikið fyrir því að koma okkur upp.. það voru bísna rökræður, því við tókum þetta í svona lotum við ætluðum held ég 3 eða 4 sinnum að snúa við og settumst niður eins og hundar með skottið á milli lappanna þegar þetta var sem hræðilegast.... enda gengum við upp virkilega ótraustvekjandi stiga, mjóar sillur þar sem við vorum límdar við klettaveggina og siluðumst áfram og svo það aaallraa verstaa!!! JÁRNSTIGINN 8| það var alveg lóðréttur brunastigi sem þurfti að klífa í restin og ég skalf í hnjánum og fraus þegar ég var komin hálfan stigann EN ÉG KOMST! með hjálp reyndar;) en komst þóó!!:haha:
uppi var okkur svo sagðar sögur af Gretti og skoðuðum æðislegt útsýni:)
Svo gangan niður var pís of keik þegar járnstiginn var búinn:D

Photo0107.jpg ulla picture by boggan

Photo0106.jpg sjit picture by boggan

Photo0099.jpg stigi picture by boggan

Photo0098.jpg utsyni picture by boggan

Photo0104.jpg stigi1 picture by boggan

eftir þessa þvílíku lífsreynslu fórum við í land eftir að hafa silgt í kringum eyna og heyrt fleiri sögur og keyrt í flugumýri þar sem átti að skella sér á bak... en þá var búið að sleppa hestunum svo við skoðuðum þetta líka glæææsilega hesthús í staðinn og spjölluðum við frúna á bænum:)

á leiðinni svo á Akureyri fórum við að skoða minn æskuótta, draugahúsið Bakkasel og það var ekkert skrítið að ég var hrædd.... því þetta var roooosa draugalegt og hafði einhver maður tekið sig til og kúúkað á gólfið þar!!:lol:
En það var ekki allt, við lentum í brjáluðum bændum sem voru svo reiðir afþví við fórum inná draugalandið:lol:

Svo komumst við loksins á Akureyri og borðuðum á Bauutanum sem var algjör snilld:D
og þar gerðist þetta líka æðislega gullkorn:

við vorum að keyra fram hjá Bautanum og í glugganum stóð slagorð eitt "Bautinn -þó líði ár og öld" við Íris vorum náttúrulega alveg ómeðvitaðar um hvor aðra svo ekki sé talað um þreytuna sem hrjáði okkur svo mjög, en við tókum lagið og sungum þó líði ár og öld...en það var ekki sungið meira en það því jú....við byrjuðum á náákvæmlega sama tíma í nákvæmlega sömu tónhæð algjörlega óviljandi!! :D:D
þessvegna gátum við nú ekki haldið lengra með lagið því að við hlógum svo gríðarlega!!

það er þá alveg spurning hvað var mest skerí við ferðina.... að klífa Drangey eða það að ég og Íris erum farnar að huxa mikið það sama??!

Photo0087.jpg vid picture by bogganPhoto0085.jpg iris picture by boggan

Takk fyrir frábæran dag;*

kv. Salbjörg -skíthrædda en hugrakka samt!:D


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 08:02:06 / sabba

Braaaceface? Beauty is paaaiin!

Jæææjah! þá er maður komin með þessar árans spangir!:|  þeim var plantað í efri góminn í gær og þetta er EKKI gott!!:evil: það er alveg fáránlegt að hafa þetta í kjaftinum ég veit ekkert hvernig ég á að hafa fkn vörina..!!:S ég var svo pirruð á þessu í gær að mig langaði að rífa þetta úr mér, barað kipp'essu burt;)....nei ég vil beinar tennur....!!:D
En vá það munaði engu að ég gréti úr sársauka í morgun þegar ég byrjaði að tannbursta þessa málmrúst!  framtennurnar eru baaaara pain og ég get hvorki bitið saman eða sagt almennilegt S :S en mér skilst að þetta lagist:|...verð bara að lifa á fljótandi þangað til!!  Við Bjöggi verðum saman í því;*


En nóg af þessu ruuuugli! við hjúin fórum sumsé á Ak í gær að láta græja þetta í mig, oooog Jónas fór og keypti sér eitt stykki bíl8) hann er djöööfulli nettur subaru impreza dökkblár 2000árg. algjör snilld og hann er með svona innspýtingu eða e-ð svoleiðis þannig að hann er geðveikt fljótur upp;) geggjað gott að keyra hann:D og er líka bara svo töff8)...:lol: Svo fann hann og keypti  handa mér firstu seríu af One Tree Hill þannig nú á ég aaaallt safnið:D hann gaf mér það í spangargjöööf:P algjört yndiii:)

en ég er nú í vinnuni núna og þarf að farað sinna gestunum

kveðja Sabba GoldenBrace-


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 00:57:44 / sabba

Afmælisblooogg og fleira seeeyðandi;D

jæja, best ég bloggi nú þar sem ég hef gott sem ekkert að gera:D ...ég er sumsé núna í skúlagarði já! enn í vinnuni vegna þess að einhverjir ógeðslega frekir íslendingar sem voru búin að panta gistingu hringdu klukkan hálf 11 og sögðust vera að leggja af stað frá ÞÓRSHÖFN!?? já þið lásuð rétt!... og ég var nú þegar ný búin að vera að bíða eftir fólki frá Akureyru puff! ...og ekki nóg með það samt... heldur vilja þau fá veitinga þegar þau koma! ég held nú síður drullist bara inní herbergi svo ég geti lokað og farið að sofa því jú ég er á morgunvakt á morgun!!

en nóg um röfl!! :D  seinust dagar eru búnir að vera æði.. Snigla helgin var reeeyndar klikkun vaktaplanið var þannig að við unnum í 8 tíma og fengum svefn í 8 frá fimmtudegi til sunnudags.  vann ég á tveim böllum af þremur og var það ekki létt verk, því þegar loksins var búið að koma fulla hiskinu úr húsinu þurfti að fara beint í að þrífa aaaallt húsið fyrir morgunmat8| nó kidding! hehe en samt moooonneyyy:D

svo seinustu helgi var haldið fjölskyldumóót hér í Skúló og stóðum við stöllur (Íris & ég sjálf) fyrir þvííí!:D þar var góð mæting voru þetta systkini pabba og þeirra fylgifiskar og amma og afi;* þetta tókst alveg æðislega fórum við í krokket, reipitog, hellaferðir og í Gljúfrastofu svo grilluðum og héldum okkur smá brennu þar sem var fjöldasöngur og spilaði minn hæfileikaríki kærasti undir honum... enda er hann dýrkaður af ömmu og pabba núna;D því hann er svo talented:D *proud* hann var klappaður á svið og alles seinn um kveldið .... ásamt mörgum skemmtiatriðum af hinum ýmsu og ræðum.... þar stóð nú samt uppúr leikritið sem pabbi og systkinin héldu hahahaha algjör snilld náði því á teip....get hleigið endalaust að því....!!!  það var svo djammað fram á rauða nótt með hinum ýmsu fíflalátum og leikjum sem hún Gudda systir stóð fyrir :D:D hahahah og ég er ekki að ljúga ég var með strengi í maganum og lærunum daginn eftir..... ásamt kannski nokkrum öðrum kvillum;) þó ekki eins illa haldin og Jónas því hann lét Guðnýju plata sig í að klára hálfann spilastokk í drykkjuleik i restina og var orðinn vel valtur á leið heim;* þetta krútt.... sum sé alveg æðislega vel heppnað  og verðu eins og menn segja "lengi vel í minnum haft" ;D
afi og amma launuðu okkur fyrir þetta snilldar framtak okkar írisar svo og gáfu okkur bleika rós og koss á kinn og svo fylgdi einn engill líka með því við erum svo miklir englar fyrir að hafa staðið fyrir þessu;* þau eru æði!!!

en jámm þá hef ég lokið mer af hér elskurnar það er ekki langt í myndirnar frá þessu frábæra móti thank you very næs;*

svo er það lokaprúttið:D
Íris mín átti afmæli á þriðjudaginn síðastliðinn og var sextán ára yndismæær:D
ég veit að þetta er soldið seint afmælisblogg en ég gerði það þó og ég hafði meiraðsegja uppáhaldslitina þín á stöfunum;**

til hamingju elskan mín!!;D

- Salbjörg the invincible....:P


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 19:50:44 / sabba

Jónas púngur Bloggar!!!!!!!!!!

Góðann daginn góðir hálsar og herðar (Head & shoulders) Jónas hérna megin að skrifa eitt blogg fyrir hana salbjörgu mína....

 

jæja helgina var afdrifamikil... já það var sko farið í rjóðrið og já það var alveg hrikalega gaman8) og já ég skal alveg viðurkenna það hér á veraldarvefnum að alcohol var innifalið og það mikið af því í mínu blóði :lol:..... já þarna voru komnir saman flestir sveitungar í eitt rjóður og var mjög mikið af fólki og var innifalið mikið alcohol í þeyrra blóði.... og jú hún sabba mín hún fékk sér nokkra væna sopa að þeim drykki sem kallar sig bjór 8|..... og já það flugu sögur og brandarar útum allar  grysjur og var einna helst sagan um djúpsteikingarpottinn
(ef þið hafið ekki heyrt hana þá á salbjörg bara eftir að segja ykkur hana) :lol:....

 

 menn fengu mis mikið af konum með sér heima og aðrir þurftu að sætta sig við lóufimmboga 8) ....................................................... að það má geta þess að einn góðvinur okkar gæti lennt á góðum séns núna eftir þetta...... en því miður gáfu þau hvor öðru engin símanúmer... þannig að vandinn er ábyggilega númeraleysi... annars væri þetta bara gott held ég...... en engin nöfn eru gefin á síðu sem þessari....

 

 

en nóg af þessu rjóðri.... Hinsvegar dagurinn eftir.... ég er ekki frá því að þegar vaknað var þá hafi verið mikið um hausverk.... hann var meira en gríðarlegur og heilasellurnar virkuðu engann veginn... en jújú það fyrsta sem var étið var einn sveittur og góður burger að hætti sigga hall...... meina shell V-Power..... og svo var bara farið og brasað með Svölu og Jenna... þau einmitt ferðuðust með okkur eða við auðvitað ferðuðumst öll saman og sindri líka 8) sem aðal driver í þessari ferð... því miður fyrir salbjörgu vantaði nú einn eða tvo aðila í þetta rjóður það var hún ÍRIS EDDA!!!!!!!!!!!!!!! já góðann daginn svo skillst manni að húna hafi bara setið heima með kók í hendi og bjarka í hinni............. og BJARKI HVAR VARST ÞÚ annarstaðar en í hendinni á írisi.....

 

en jæja éghef lítið meira að segja nema að salbjörg biður að heylsa :D

 

veriði marg blessuð og njótið vel                                      kv: nasinn sjálfur


» 10 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 09:51:15 / sabba

YAAAAWN!!!..

Gúdd deij!

nú er sauðburðurinn looksins að verða búinn.. bara einhverjar 8 kindur efitir! NICE:!: já það verður hörku gott að losna við þær burt og byrja að vinna á fullu....en það er barasta strax kominn Júní, og æðislegur mánuður frammundan ójá! reyndar ætlar hún Íris að yfirgefa mig í viku - 10 daga til að vera i DK með einhverju grunnskólaliði hahaha;) djóóóóóók!

Hey eitt skondið innskot hér... ég og Íris fórum í "roadtrip" til Ak eða ég tók hana með mér því að ég þufti að fara alla leið til Ak með bílinn í skoðun og viti menn, það varð auðvitað endurskoðun og ýmislegt sem þarf að fixa....ég held ég fari bara að kalla skrjóðinn mr.endurskoðun....mig minnir að ég hafi nú farið með hann þrisvar sinnum í fyrra....úffh! ploppaði alltaf e-ð nýtt upp!:$

æj já erfitt að vera éééég....;)

HollaBack -Salbjörg Matt.jr8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 09:23:34 / sabba

I AM COMPLETE!!:O

AAaaaaahhhhh......þetta var gott8)

miskiljið eins og þið viljið....en málið er að það er bara svo yyyndislegt að fá 3-4mánaða frí frá bóóóókum og lærdómi...:D þótt ég hafi nú þurft um leið og ég kláraði seinasta prófið...sem var í gær þá þurfti ég að vakna klukkan 6 í mogun og kindast og skúllast:S en það er í góðu...allt betra en þetta fkn lærdómsdrasl!!;)

En að segja frá því þá gekk bara mjög vel í prófunum ég er búin að ná öllu og er ekkert smá stolt að ná öllu og vera í 7 prófum á 2 vikum.....og það erfiðum því hún ungfrú Salbjörg þurfti að læra vel fyrir hvert og einasta því hún var ekki mikið að fylgjast með í vetur:haha:hehe....:S

En jamm og jæja....gott að komast í sveitasælunna!! Jónas minn flytur til mín í daag við ætlum að byrja á að búa hér í Árdal útaf sauðburðinum.....svo skiptumst við á að búa hér og á Húsavík:) ég hef góða tilfinningu fyrir sumrinu;) hef nú aldeilis huxað mér að njóta þess;*

en nóg með það!....það er eins gott að þið farið að virkjast í að kommenta og fara á þessa síðu ef ég á að hafa fyrir því að halda henni uppi því annars dettur hún niiiiður;* hehehe loooov

Salbjööörg8| 


» 10 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 17:32:30 / sabba

Heil & Sæl...(skulum við vona);)

jæææja!

nú skal ég segja ykkur sögu, af ungri stúlku sem hefur verið týnd alveg síðan um jólin.  hún varð útskúfuð úr allri tækni, allri menningu og öllu samfélagi.... þangað til hún varð alveg brjáluð og sprakk!...  úr þeim leifum er nú endurfædd sú manneskja sem pikkar á þetta borð hér... hún er þó ekki alveg endurfædd...það mun gerast föstudaginn 18.maí þegar prófatíð VMA er looooooooookið!!!8|

 Já Krakkar... af þessari sögu er hægt að læra það að ég er búinn að fá ógeðslega mikið leið á að sitja við bækurnar í VMA....og get ekki beðið að komast heim i mína ástkæru sveit að VINNA og eignast fokkin pening (sjiiitt ég er svo hörð...þessi nýja ég) hahahah,

jah...það er nú margt og mikið af mér að segja sííðan um jólin:D ég varð 18 i mars sem er kannski fréttnæmast LOKSINS, svo að nú má ég kjóóósa... og trúið mér það er mikið búið að reyna að vinna mitt atkvæði í hina ýmsu flokka þó aðallega framsókn.. þar sem minn ástkæru Jónas og Sveinbjörn, tengdapabbi og mamma og fl. eru búin að reyna að heilaþvo mig...en ég segi stopp... ef það er þrýst á mig þá kýs ég bara það sem enginn vill að ég kjósi... neeeei ég er ekki það vitlaus... en valið liggur á milli XB og XD... og ég er nánast búin að ákveða mig....en það er ekki alveg komið á hreing:haha:

kemur allt í ljós!:P

en ég læt þetta nægja í bili ... ætti kannski að líta e-ð á þessa blessuðu stærðfr. sem er algjör latína og verður ábyggilega valdur míns fyrsta falls....kemur også í ljós...!

heydo

Salbjörg...:)

PS. spæderman myndin= æ luuuuuuv it;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8